Ef þú vilt slá í gegn í jólapartýinu í vinnunni eða hvaða partýi / saumaklúbbi sem er þá er þetta málið! Þesi spínathringur mun heilla hvern þann sem smakkar upp úr skónum. Einfaldur og sjúklega fljótlegur því það er svo mikil snilld að geta keypt tilbúið smjördeig út úr búð.
Grískur
spínathringur
Fyrir ca 8-10
Innihald
1 pakki Wewalka
smjördeig
300 g spínat
100 g Mozzarella
ostur
120 g fetaostur
30 g svartar
ólífur
40 g Ristaðar furuhnetur
120 g majones
1 hvítlauksgeiri
Salt og pipar
Eggjahvíta
Parmesan ostur
Aðferð
Afþýðið spínatið
og kreistið allt vatn úr því. Setjið spínatið í skál ásamt, mozzarella osti,
fetaosti, furuhnetum, majonesi og hvítlauk. Skerið ólífurnar gróflega niður og
setjið saman við. Kryddið með salti og pipar og hrærið þar til allt hefur
blandast vel saman. Skerið smjördeigið í tvennt eftir endilöngu, myndið 10
ferninga og skerið hvern ferning í tvenn svo úr verði tveir þríhyrningar.
Setjið smjörpappír á bökunarplötu og raðið þríhyrningunum á hana þannig að breiði
endinn snúi inn til að mynda hring. Látið endana leggjast ofaná hvorn annan til
hálfs og myndið hring. Setjið spínatblönduna ofaná hringinn, leggið endana af
þríhyrningunum yfir spínatblönduna og festið við innanverðan hringinn. Hrærið eggjahvítu í skál og penslið yfir
deigið og setjið ofaná rifinn parmesan ost. Bakið í 15-20 mínútur við 180 gráðu
hita eða þar til deigið er orðið fallega gullinbrúnt. Gott bæði heitt og kalt.
Verði ykkur að góðu!
Thelma
nammi namm lítur gernilega út. Hvar er hægt að kaupa Wewalka smjördeig?
ReplyDeleteBónus, Hagkaup, fjarðarkaup td er hja pizzadeiginu oft
Delete