Þetta smjörkrem nota ég eiginlega alltaf þegar ég er að skreyta kökur og bollakökur. Það er svo gott og auðvelt að vinna með það og passar við flest allar gerðir af kökum.
Smjörkrem
250 g. smjör við stofuhita
1 pk. Flórsykur (500 g.)
4 tsk. vanilludropar
2-4 msk. mjólk
Hrærið smjörið í hrærivélinni
þangað til það er orðið mjúkt og létt.Bætið smá og smá af flórsykrinum
saman við og hrærið vel á milli.
Bætið því næst vanilludropunum
saman við og mjólkinni. Ef ykkur finnst kremið of þykkt bætið þið við mjólk og
ef ykkur finnst það of þunnt bætið þá við flórsykri. Mikilvægt er að hræra
kremið mjög vel þegar maður ætlar að skreyta kökur því þá losnum við við alla
smjörkekkina og kremið verður með fallega áferð. Því lengur sem þið hrærið því
betra verður kremið. Kremið verður hvítara eftir því sem þú hrærir það lengur. Svo er um að gera að lita það með öllum regnbogans litum.
Njótið
Kveðja
Thelma
notaru ekta ísdlenst smjör eða smörlíki
ReplyDeleteer í lagi að geyma þeytt smjörkrem þar til daginn eftir?
ReplyDelete