expr:class='"loading" + data:blog.mobileClass'>

Friday, August 5, 2016

Hnetu Nizza ostakaka með súkkulaðihjúpuðum heslihnetum







Hnetu Nizza ostakaka með súkkulaðihjúpuðum heslihnetum


Botn
300 g hafrakex
100 g ristaðar karamelluhnetur
70 g smjör við stofuhita
1 msk Hnetu Nizza (Síríus heslihnetusmjör)

Ostakak
450 g rjómaostur
370 g Hnetu Nizza (Síríus heslihnetusmjör)
60 g flórsykur

Toppur
100 g súkkulaðihjúpaðar heslihnetur, hakkaðar

Aðferð
Setjið smjörpappír í hringlaga form um22 cm að stærð. Setjið hafrakex, ristaðar karamelluhnetur, smjör og Hnetu Nizza saman í matvinnsluvél og hakkið þar til allt hefur blandast vel saman og er orðið vel blautt af smjörinu. Þrýstið hafrakexblöndunni ofan í botninn á forminu, gott er að nota glas eða skeið. Kælið botninn á meðan þið undirbúið ostakökuna.
Hrærið rjómaost og flórsykur saman þar til blandan verður mjúk og slétt. Bætið Hnetu Nizza saman við og hrærið þar til allt hefur  náð að blandast vel saman. Setjið rjómaostablönduna í formið ofan á hafrakexbotninn. Setjið súkkulaðihjúpuðu heslihneturnar í matvinnsluvél og grófhakkið. Setjið þær ofan á ostakökuna og þrýstið þeim örlítið niður svo þær festist vel. Kælið í 5 klukkustundir. Geymið í kæli þar til kakan er borin fram. 

Hægt er að nálgast uppskriftina á vef Gott í matinn og þar er hægt að magfalda uppskrftina að vild.

Kveðja, Thelma

No comments:

Post a Comment